Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.

Í níundu og næstsíðustu umferð fram fór í gær gerði Hilmir jafntefli við ástralíska alþjóðlega meistarannRishi Sardana (2506). Skákin var lengst af í jafnvægi.

Hilmir hefur 6 vinninga og er skiptu 29. sæti. Hann mætir Pólverjanum Adam Haladaj (2085) í lokaumferðinni. Skákin er ekki beinni. Er á 27. borð en 26 eru í beinni í hverri umferð.

Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.

- Auglýsing -