Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2026 hófst í gær, miðvikudaginn 2. september. Mótið er sem fyrr eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót Taflfélags Reykjavíkur. Að þessu sinni er teflt í A-flokki og opnum flokki.
A-flokkur
Bárður Örn Birkisson er stigahæstur í flokknum sem er veikari en oft áður en samt blanda af sterkum skákmönnum og ungum og efnilegum að fá góða reynslu gegn sjóuðum skákmeisturum.
Pétur Úlfar tefldi hvassan varíant í Caro-kann en lenti í vel undirbúnum Jóhanni H. Ragnarssyni og Pétur fékk eiginlega aldrei tækifæri til að sýna hvað í honum býr þar sem Jóhann fékk strax betra tafl eftir byrjunina og hvíta staðan erfið.
Gauti Páll sýndi að hann er kandídat í CM titilinn með því að leggja CM Jón Árna Halldórsson að velli í jafnteflislegu endatafli. Lítið stóð á milli en á endanum lenti riddari Jóns í leikþröng og peðsendataflið vannst á einu tempói.
Bárður Örn byrjaði vel og lagði Halldór Grétar að velli með skemmtilegri sókn á kóngsvængnum sem virtist vel útfærð.
Jósef Omarsson hafði svo betur gegn Birki Hallmundarsyni.
Skák Hauks Víðis og Mikaels Bjarka var frestað í 1. umferðinni.
Opinn flokkur
26 skákmenn taka þátt í opna flokknum og stigahæsti keppandinn er Iðunn Helgadóttir.
Skák Katrínar og Iðunnar var eina skákin í beinni. Landsliðskonan Iðunn hafði betur í skákinni. Iðunn þurfti að hafa nokkuð fyrir sigrinum, fékk gott tafl snemma í miðtaflinu en missti tökin undir lokin þar sem Katrín var búin að jafna taflið en Iðunn náið svo aftur tökum á stöðunni.
Eitthvað var um óvænt úrslit ef tekið er mið af skákstigum. Hinn ungi Helgi Fannar Óðinsson lagði stigahærri andstæðing og hið sama gerði Ingi Hrafn Ýmisson.
Næsta umferð er á föstudagskvöldið en teflt er nokkuð þétt!
FYRIRKOMULAG:
Tefldar verða níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver, þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).
Tímamörk:
Tímamörk eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar. Í opnum flokki er lágmarksfjöldi þátttakanda 24 og þar af helmingur þeirra með elo-stig.
Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.






















