Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2026 hélt áfram í gær, föstudagskvöld. Enn hafa þeir Gauti Páll Jónsson og Jósef Ómarsson fullt hús í A-flokki. Fjórir hafa enn fullt hús í opnum flokki, flestir ungir og efnilegir! Þriðja umferð verður tefld á morgun, sunnudag.

A-flokkur

Bárður Örn Birkisson á óteflda skák í A-flokki og gæti náð þeim Gauta og Josef að vinningum.

Gauti náði að leggja hinn unga Pétur Úlfar að velli, var klárlega reynslumeiri í mið- og endataflinu.

Josef hafði betur gegn Hauki Víðis í tvísýnni skák þar sem hvítur hafði lengst af þægilegra tafl en Josef var betri í flækjunum.

Birkir náði í sigur gegn Jóhanni Ragnarssyni þrátt fyrir erfiðleika framan af tafli.

Halldór Grétar hafði svo betur gegn Jóni Árna.

Skák Hauks Víðis og Mikaels Bjarka var frestað í 1. umferðinni.

Opinn flokkur

26 skákmenn taka þátt í opna flokknum og stigahæsti keppandinn er Iðunn Helgadóttir.

_D0A6351

Iðunn lagði Emilíu að velli og er með fullt ásamt þremur öðrum.

Önnur úrslit má sjá á chess-results.

Næsta umferð er á sunnudaginn en teflt er nokkuð þétt!

FYRIRKOMULAG:

Tefldar verða níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver, þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).

Tímamörk:

Tímamörk eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar. Í opnum flokki er lágmarksfjöldi þátttakanda 24 og þar af helmingur þeirra með elo-stig.

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.

- Auglýsing -