Taflfélag Garðabæjar ætlar að vera með hraðskákmót einu sinni í mánuði í vetur í Miðgarði. Mótin koma í stað vikulegra skákkvölda en stefnan er að hafa mánaðarmótin veglegri fyrir vikið, veita ýmis verðlaun og ef mótsstjóri verður í stuði þá gætu léttar veitingar verið í boði.
Fyrsta mótið verður núna á mánudaginn, 14. september, kl. 19:30.
Þátttökugjöld:
- Félagsmenn
- Fullorðnir: 500 kr.
- U18: Frítt
- Utanfélagsmenn
- Fullorðnir: 1.000 kr.
- U18: 500 kr.
- Auglýsing -


















