Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2026 heldur áfram í dag með tveimur viðureignum í 16 manna úrslitum. Taflmennska hefst kl. 15:00. IM Björn Þorfinnsson og FM Birkir Ísak Jóhannsson sjá um skákskýringar dagsins.
Fyrri viðureign dagsins er FM Jón Kristinn Þorgeirsson gegn FM Róbert Lagerman. Að henni lokinni mætast GM Bragi Þorfinnsson og FM Oliver Aron Jóhannesson.
Viðureignirnar eru á Lengjunni. Lengjan telur Jón Kristin (1,35) töluvert líklegri en Róbert (2,45) og Braga (1,40) líklegri en Oliver Aron (2,30). Skák.is minnir á ábyrga spilun.
Hægt er að fylgjast með á Símanum Sport eða á YouTube-rás RÍSÍ og Twitch-rás RÍSÍ.
Síðasti leikdagur
Í fyrstu umferð 16 manna úrslita, 6. september, vann IM Hilmir Freyr Heimisson FM Símon Þórhallsson 4–0. Viðureign WGM Lenku Ptácníkové og GM Jóhanns Hjartarsonar var frestuð og fer væntanlega fram eftir Ólympíuskákmótið.
Viðureignir í 16 manna úrslitum
- 6. september: FM Hilmir Freyr Heimsson – FM Símon Þórhallsson
- 6. september: WGM Lenka Ptácníková – GM Jóhann Hjartarson (frestað)
- 13. september: FM Jón Kristinn Þorgeirsson – FM Róbert Lagerman
- 13. september: GM Bragi Þorfinnsson – FM Oliver Aron Jóhannesson
- 27. september: IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – FM Bárður Örn Birkisson
- 27. september: IM Björn Þorfinnsson – GM Helgi Áss Grétarsson
- 4. október: GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson
- 4. október: FM Sigurbjörn Björnsson – FM Ingvar Þór Jóhannesson
Í átta manna úrslitum mætast sigurvegarar tveggja viðureigna í sama flokki:
- Lenka/Jóhann – Sigurbjörn/Ingvar
- Aleksandr/Bárður – Björn/Helgi Áss
- Jón Kristinn/Róbert – Vignir/Dagur
- Bragi/Oliver – Hilmir
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum kl. 15 frá 6. september til 15. nóvember 2026:
-
- september: 16 manna úrslit
- september: 16 manna úrslit
- september: 16 manna úrslit
- október: 16 manna úrslit
- október: átta manna úrslit
- nóvember: átta manna úrslit
- nóvember: undanúrslit
- nóvember: úrslit
Verðlaun
-
- sæti: 125.000 kr.
- sæti: 75.000 kr.
- sæti: 25.000 kr.
- sæti: 25.000 kr.



















