Stórmeistarinn Vignir Vatnar varð hlutskarpastur á eigin móti sem haldið var í samstarfi við Snóker&Pool í Lágmúla í kvöld. Tefldar voru 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og mótið reiknað til hraðskákstiga. Vignir var í banastuði fékk 9 vinninga af 9 mögulegum, líklegast 7,85 vinningar í nýju stigakerfi sem bíður samþykkis, svokallað skák x-G! Jón Trausti Harðarson varð ekki bara í öðru sæti á mótinu heldur átti sinn þátt í hugmyndafræðinni af þessu nýja x-G kerfi!
Vignir varð eins og áður sagði efstur með fullt hús en þar á eftir kom Jón Trausti með frábært mót og 7,5 vinning, eina sem vantaði upp á var að byggja almennilega brú í lykilskák! x-G hjá Jóni líklega nær 8 en ekki! Gamli Rimaskóli-meistarinn Oliver Aron Jóhannesson endaði svo í 3. sæti á mótinu.
Efstur stigalausra varð Ragnar Eyþórsson sem sneri aftur að skákborðinu eftir nokkra hvíld. Páll Ísak Ægisson varð hlutskarpstur U1700 og Emil Sigurðarson varð efstur í U2000 flokknum.
Skemmtileg stemmning á skemmtilegu móti á skemmtilegum stað!
















