Guðrún Fanney Briem var stjarna dagsins hjá íslenska hópnum í 5. umferð EM ungmenna í skák. Guðrún lagði að velli azerska skákstúlku, Lala Huzeynovu, og hefur blandað sér í toppbaráttuna í sínum flokki af fullum þunga!
Alls komu 7,5 vinning í hús og umferðin því með besta móti! Auk Guðrúnar unnu þau Eiður, Haukur Víðis, Nökkvi, Karma og Birkir sína skákir auk þess sem Harpa Hrafney fékk vinning fyrir hjásetu. Jafntefli varð niðurstaðan hjá Mikael Bjarka sem hefði vel getað náð sigri gegn sterkum andstæðingi. Aukinheldur var innistæða fyrir úrslitum í mörgum af tapskákunum, t.d. var Dagur Sverrisson með hartnær unnið tafl og Markús Orri yfirpressaði gegn sterkum andstæðingi og varð að sætta sig við tap.
Guðrún mætti, eins og alltaf, vel undirbúin fyrir sína skák og var klár í harða baráttu gegn Huseynovu. Sú azerska kom Guðrúnu, og okkur, þó aðeins í opna skjöldu með því að velja hliðarafbrigði gegn sikileyjarvörn Guðrúnar.
Skotgrafarhernaður var í raun þvingaður í stöðu með mikilli undiröldu en lítið af dýnamískum peðsleikjum. Guðrún hafði aðeins betra í miðtaflinu en missti tökin eilítið þegar fór að nálgast endataflið en þegar komið var í tímahrak var Guðrún miklu harðari í endataflinu og náði að knésetja andstæðing sinn.
Vert er að minnast á tímanotkun Guðrúnar sem hefur snöggbatnað allverulega og hefur hún forðast tímahrak að mestu á þessu móti og oft verið með gott tímaforskot!
Góð umferð að baki og á morgun er frídagur á mótinu. Ýmislegt verður gert sér til dundurs, einhverjir ætla í skoðunarferðir og margir hyggjast heimsækja heimavöll OFI Crete þar sem þeir mæti liði Harðar Björgvins Magnússonar í efstu deildinni á Grikklandi.
Stemmningin í íslenska hópnum er góð og áframhaldandi barátta í seinni hluta mótsins er framundan! Vinnusemin og elja í hópnum hefur verið til fyrirmyndar og ekki farið framhjá þjálfurum hvísl frá sterkum skákmönnum heima um ánægju yfir því hvað íslensku keppendurnir séu með dýpri undirbúning en oft áður!
Eins og í fyrra var haldið upp á afmæli Péturs sem varð 11 ára í dag. Því miður varð hann að lúta í dúk í dag en hefur átt got mót og heldur áfram að berjast í seinni hluta mótsins eins og allir! Pétur fékk afmælissöng og gómsæta afmælisköku auk gjafa frá hópnum.



Úrslit 5. umferðar

Guðrún Fanney er aftur eini íslenski keppandinn sem verður í beinni á mánudaginn en þá mætir hún herbergisfélaga sínum, Odu Skramstad, sem verður að teljast ansi leiðinleg pörun!
Chess-results
Heimasíða mótsins
Beinar útsendingar
Mótið stendur yfir dagana 3.-12. nóvember. Tefldar verða níu umferðir með tímamörkunum 90+30.
U18
Markús Orri Óskarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
U16 stúlknaflokkur
Guðrún Fanney Briem
U14
Birkir Hallmundarson
U14 stúlknaflokkur
Harpa Hrafney Karlsdóttir
U12
Haukur Víðis Leósson
Pétur Úlfar Ernisson
Karma Halldórsson
Nökkvi Már Valsson
U10
Dagur Sverrisson
Eiður Jökulsson
Róbert Heiðar Skúlason
U8
Helgi Fannar Óðinsson
Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):
|
Þriðjudagur
|
3. nóvember
|
13:00
|
Umferð 1
|
|
Miðvikudagur
|
4. nóvember
|
13:00
|
Umferð 2
|
|
Fimmtudagur
|
5. nóvember
|
13:00
|
Umferð 3
|
|
Föstudagur
|
6. nóvember
|
13:00
|
Umferð 4
|
|
Laugardagur
|
7. nóvember
|
13:00
|
Umferð 5
|
|
Sunnudagur
|
8. nóvember
|
Frídagur
|
|
|
Mánudagur
|
9. nóvember
|
13:00
|
Umferð 6
|
|
Þriðjudagur
|
10. nóvember
|
13:00
|
Umferð 7
|
|
Miðvikudagur
|
11. nóvember
|
13:00
|
Umferð 8
|
|
Fimmtudagur
|
12. nóvember
|
12:00
|
Umferð 9
|


















