Atskákkeppni taflfélaga fór fram í 6. sinn laugardaginn 14. nóvember síðastliðinn. 18 lið mættu til leiks, sem er met, mest höfðu 16 lið tekið þátt. Nokkur félög voru að taka þátt í fyrsta sinn á mótinu! Það voru Skákdeild Hauka, Skákfélag Mosfellsbæjar og Íþróttafélagið Snóker og Pool. Einnig sendu Skákfélag Selfoss og nágrennis og Taflfélag Vestmannaeyja í fyrsta sinn B-sveit til leiks. Við fögnum öllum nýliðum á þessu skemmtilega móti!

Breytt fyrirkomulag var á mótinu, sem almennt þótti lukkast nokkuð vel. Í stað níu umferða sem tefldar voru á tveimur kvöldum, var allt mótið sjö umferðir og teflt á einum laugardegi. Mótið tók rétt rúma fjórar klukkustundir. Um 130 skákmenn mættu og tefldu fyrir hönd sinna félaga. Mótshaldari var Taflfélag Reykjavíkur.

Skákdeild Fjölnis vann mótið í ár mjög örugglega, vann allar sínar viðureignir og fékk 14 liðsstig og 32½ vinning. Þetta er glæsilegur árangur hjá Fjölni og í fyrsta sinn sem félagið vinnur þetta mót. Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson vann allar skákir sínar sjö fyrir Fjölni. Jón Trausti Harðarson náði einnig eftirtektarverðum árangri hjá Fjölni og græddi 52 stig. Í öðru sæti urðu fráfarandi atskákmeistarar, Skákdeild Breiðabliks, með 12 liðsstig og 27½ vinning. Í þriðja sæti varð Taflfélag Reykjavíkur, með 9 liðsstig og 29 vinninga. Efst B-liða var B-lið Taflfélags Reykjavíkur, einnig með 9 liðsstig og 21½ vinning. Bestum einstaklingsárangri í mótinu náði Nökkvi Hólm Brynjarsson með 120 stiga hækkun.



Á chess results má sjá öll liða- og einstaklingsúrslit.
Aðaldómari í mótinu var IA Jon Olav Fivelstad með góðri aðstoð Magnúsar Kristinssonar formanns TR.
Myndir tók Tómas Tandri Jóhannsson og sjá má þær hér.
Sjáumst að ári í atskákkeppni taflfélaga!
Ykkar einlægur, Gauti Páll


















