Sjöunda og áttunda umferð Minningarmóts Friðriks Ólafssonar fóru fram í Taflfélagi Reykjavíkur í Faxafeni 12 í dag, laugardaginn 28. nóvember. Moldóvski stórmeistarinn Ivan Schitco gerði jafntefli í fyrri umferð dagsins en lagði Íslandsmeistarann Hilmi Frey Heimisson að velli í þeirri síðari og er kominn með sex vinninga af átta mögulegum. Á sama tíma hélt spennan áfram að magnast í toppbaráttunni. Tor Fredrik Kaasen afgreiddi Björn Þorfinnsson í aðeins 23 leikjum í fyrri umferðinni og lagði svo Vigni Vatnar að velli í seinni skákinni og kom sér á toppinn ásamt Ivan.

Fyrir daginn voru margir um hituna og það breyttist lítið eftir morgunumferðina. Þvert á móti fjölgaði keppendum sem gátu gert sér vonir um efsta sætið. Förum yfir helstu tíðindin, fyrst úr 7. umferðinni og síðan þeirri áttundu.

7. umferð – fimm keppendur jafnir á toppnum

Á efsta borði hafði Vignir Vatnar Stefánsson (2510) hvítt gegn norðurmakedónska alþjóðlega meistaranum Emil Risteski (2435). Vignir fékk ekki mikið út úr byrjuninni en skákin þróaðist yfir í langa baráttu þar sem Vignir reyndi að kreista eitthvað út úr hrókaendatafli. Risteski varðist og jafntefli varð niðurstaðan eftir 53 leiki.

Á næstu borðum sömdu Hilmir Freyr Heimisson og norski stórmeistarinn Aksel Bu Kvaløy um jafntefli eftir 15 leiki. Sama niðurstaða varð í skák Gergönu Peychevu og Ivans Schitco, sem lauk raunar enn fyrr, eftir aðeins 11 leiki.

Þannig virtist allt ætla að standa í stað á efstu borðunum – en Norðmaðurinn Tor Fredrik Kaasen (2497) var á öðru máli!

Kaasen refsaði Birni grimmilega

Kaasen hafði hvítt gegn Birni Þorfinnssyni (2358) og upp kom spænskur leikur. Eftir 16…Bb7?? fékk hvítur hins vegar frábært tækifæri sem Norðmaðurinn greip með báðum höndum. Með 17.bxa6! skapaði hann sér stórhættulegt a-peð, sem var komið alla leið á a7 í 20. leik. Björn reyndi að skapa mótspil á kóngsvængnum, en eftir 23.Hxg7+! var nóg komið og svartur gafst upp.

Sigurinn kom Kaasen í hóp efstu manna. Að lokinni sjöundu umferð voru Vignir, Risteski, Kvaløy, Schitco og Kaasen allir með fimm vinninga. Það var því sannkölluð stífla á toppnum fyrir síðari umferð dagsins!

Lenka lagði Jósef – og Birkir hélt áfram að safna vinningum

Lenka Ptáčníková (2097) bætti enn einum góðum sigri í safnið þegar hún lagði Jósef Ómarsson (2260) að velli. Í Rossolimo-afbrigði Sikileyjarvarnar tók Lenka frumkvæðið á drottningarvængnum og eftir 23…Be4?? fór að halla verulega undan fæti hjá Jósef. Lenka hélt þéttingsfast um frumkvæðið, tvöfaldaði hrókana í sókninni og lauk taflmennskunni með 42.De6+, en þá gafst Jósef upp.

Þetta var annar athyglisverður sigur Lenku á mótinu, en hún hafði áður lagt stórmeistarann Helga Áss Grétarsson í fyrstu umferð.

Síðasta skákin í umferðinni var athyglisverð en þar slapp Guðmundur Kjartansson með jafntefli gegn Þjóðverjanum Laurin Perkampus.

Hér átti Þjóðverjinn mát í 4 leikjum en missti af því. Í kjölfarið missti hann einnig þráðinn í tveir riddarar gegn peði, hann gat umkring g-peð Guðmundar og þá hefði svarta peðið á e6 verið innan Troitsky-línunnar og hvítur staðið til vinnings! Skemmtileg tilviljun að Helgi Áss skrifaði einmitt um þetta endatafl í Tímaritinu Skák.

8. umferð – Schitco lagði Íslandsmeistarann

Í síðari umferð dagsins náði Ivan Schitco í algjöran lykilsigur þegar hann hafði betur gegn Hilmi Frey Heimissyni. Moldóvumaðurinn hafði hvítt og bætti þar með heilum vinningi við þann hálfa sem hann hafði fengið fyrr um daginn. Hann er nú kominn með sex vinninga af átta mögulegum og hefur því komið sér í afar góða stöðu fyrir lokaumferðina.

_D0A3283

Hilmir fékk fína stöðu með svörtu en gleymdi sér í miðtaflinu og missti þráðinn, Ivan fórnaði manni og fékk hólkandi sókn sem skilaði sér.

_D0A3340

Vignir Vatnar Stefánsson mætti Tor Fredrik Kaasen í einni af lykilviðureignum áttundu umferðarinnar. Vignir með svörtu, teygði sig of langt þegar hann átti jafnteflið meira og minna tryggt ef hann hefði viljað. Mikilvægt fyrir Tor og baráttan um efsta sætið framundan hjá Tor og Ivan.

_D0A3371

Á sama tíma gerðu Emil Risteski og Aksel Bu Kvaløy jafntefli í sinni viðureign og eru báðir með 5½ vinning. Búlgarski FIDE-meistarinn Gergana Peycheva hélt hins vegar áfram að gera stórmeisturum og alþjóðlegum meisturum lífið leitt. Hún lagði Björn Þorfinnsson að velli og er sömuleiðis komin með 5½ vinning. Frammistaða hennar hefur verið með allra athyglisverðasta móti, ekki síst þegar haft er í huga að hún er aðeins númer 14 á stigalista keppenda. Hún hefur þegar tryggt sér WGM norm á mótinu.

Úrslitin ráðast á sunnudag

Lokaspretturinn á Minningarmóti Friðriks Ólafssonar verður því spennandi. Schitco hefur sex vinninga, en Risteski, Kvaløy og Peycheva hafa 5½ vinning hver.

Níunda og síðasta umferð hefst klukkan 10:00 á morgun, sunnudaginn 29. nóvember, í Faxafeni 12. Þá ræðst hver hlýtur sigurlaunin á mótinu sem haldið er til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslands.

Pörun og nánari úrslit má sjá á Chess-Results og heimasíðu mótsins.

- Auglýsing - Arion Banki-styrktaraðili Minningarmóts Friðriks Ólafssonar