Hannes Hlífar Stefánsson (2514) hlaut 6 vinninga í 9 skákum á alþjóðlega mótinu í Graz í Austurríki sem lauk í gær. Hann endaði í 9.-17. sæti. Hannes náði aldrei að blanda sér í toppbaráttuna. Frammistaðan samsvaraði 2467 skákstigum og lækkar hann um 5 skákstig.
Alls tóku 122 skákmenn frá 27 löndum þátt í mótinu. Þar á meðal voru 11 stórmeistarar.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 16)
- Auglýsing -















