Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2523), er í feiknaformi á alþjóðlega mótinu í Prag. Í gær vann hann úkraínska stórmeistarann Vitaly Suvuk (2514) í sjöundu umferð. Hannes hefur hlotið 6½ vinning og er einn efstur. Annar er indverski FIDE-meistarinn G.A. Stany (2507) með 6 vinninga. Þeir mætast í áttundu og næstsíðustu umferð sem fram fer í dag. Níu skákmenn hafa 5½ vinning
Alls taka þátt 172 skákmenn í flokki Hannes frá 29 löndum. Hannes er einn 12 stórmeistara sem tekur þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 15)
- Auglýsing -















