Tvö íslensk lið taka þátt í HM öldungasveita sem fram fer í Ródos. Það gengur afar vel hjá liðinu í flokki liða 65+ og er sveitin nú í fimmta sæti af 27 liðum. Í gær vannst góður 2½-1½ sigur á liði Austurríkismanna. Björgvin Víglundsson og Bragi Halldórsson unnu, Jón Kristinsson gerði jafntefli en Áskell Örn Kárason tapaði. Sveitin mætir í dag sterkri sveita Svía sem eru stigahærri á öllum borðum.
Stórmeistararliðið í flokki 50+ er í sjöunda sæti eftir tap gegn Englendingum í gær, 1-3. Helgi Ólafsson og Þröstur Þórhallsson gerði jafntefli en Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason töpuðu. Sveitin mætir í dag finnskri sveit sem stillir upp stórmeistaranum Jouni Yrjola (2327) á fyrsta borði. Íslenska sveitin er mun stigahærri á öllum borðum.
Umferð dagsins hefst kl. 12 og er hægt að fylgjast með báðum liðum beint.

- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar á Chess24 (hefjast kl. 12)















