Skólaskákmót Reykjavíkur fer fram þriðjudaginn 30. apríl í Laugalækjarskóla og hefst klukkan 16:15.
Tefldar verða 6-7 umferðir með 8 mínútna umhugsunartíma og tveimur viðbótarsekúndum eftir hvern leik.
Teflt er í yngri flokki 1.-7. bekkur og eldri flokki 8.-10. bekkur. Efstu tveir í yngri flokki fá sæti á landsmóti og efstu þrír í eldri flokki.
Hver skóli má senda til leiks sína skólameistara og þá sem hafa teflt fyrir skólann í vetur.
Skráningarfrestur rennur út kl. 22 mánudagskvöldið 29. apríl.
- Auglýsing -















