Jón Kristinsson í miðjunni hefur farið mikinn!
Helgi Ólafsson, Jón Kristinsson og Þröstur Þórhalllson hlutu allir borðaverðlaun á HM öldungasveita. Mynd: Vilborg Þórarinsdóttir.

Ungmennaliðið (50+) var grátlega nærri verðlaunum á HM öldungasveita sem lauk í gær á eyjunni Ródos. Viðureignin í lokaumferðinni tapaðist með minnsta mun en hálfur vinningur til viðbótar hefði þýtt brons og einn vinningur til viðbótar hefði gefið silfur. Niðurstaðan varð fimmta sætið. Reynsluliðið vann stórsigur í lokaumferðinni og endaði í sjötta sæti. Þrír meðlimir íslensku sveitanna hlutu borðaverðlaun.

Tap gegn Ísrael

Það leit allt vel út í upphafi umferðarinnar. Helgi Ólafsson (2506) gerði stutt jafntefli með svörtu og Þröstur Þórhallsson (2425) yfirspilaði andstæðing sinn á fjórða borði. Aðeins þurfti hálfan vinning til viðbótar til að tryggja verðlaunasæti. Jóhann Hjartarson (2520) og Margeir Pétursson (2492) töpuðu hins vegar báðir og fimmta sætið varð niðurstaðan.

Helgi Ólafsson og Þröstur Þórhallsson hlutu báðir borðaverðlaun. Helgi fyrir árangur sinn á fyrsta borði þar sem hann hlaut 5½ vinning í 8 skákum og var taplaus sem er ákaflega gott í sterkum liðakeppnum. Þröstur Þórhallsson hlaut sama vinningafjölda sem varamaður en hann tefldi sjö skákir.

Stórsigur í lokaumferðinni

Reynsluliðið (+65) vann stórsigur, 4-0, á Norresundby skákklúbbnum í lokaumferðinni. Áskell Örn Kárason, Kristján Guðmundsson, Bragi Halldórsson og Jón Kristinsson unnu allir.

Með þessum góðum sigri lyfti sveitin sér upp í sjötta sæti!

Jón hlaut borðaverðlaun fyrir árangur sinn sem varamaður en  hann hlaut 4½ í sjö skákum.

- Auglýsing -