Frá mótinu í Riga. Það má greina þarna í Helga Áss. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2461) stóð sig vel á fyrri hluta atskákmótsins sem teflt er til minningar um Mikhail Tal. Helgi hlaut 5 vinninga í sex umferðum en atskákmótinu lýkur með umferðum 7-11 í dag og er reyndar byrjað. Á morgun verður tefld hraðskák.

Það var frídagur í gær á móti Hannesar Hlífars Stefánssonar Í í Leiden í Hollandi. Í fjórðu umferð í fyrradag gerði hann jafntefli við hollenska stórmeistarann John Van der Wiel (2380) og hefur gert jafntelfi í öllum sínum skákum.

Í fimmtu umferð, sem hefst kl. 17 í dag mætir hann indverska stórmeistaranum Babu Lailith (2580).

Hannes teflir í 10 manna lokuðum flokki. Meðalstigin eru 2495 skákstig. Hannes er þriðji stigahæstur keppenda.

 

- Auglýsing -