Alþjóðlega mótið, Riga Technical University Open, hófst í höfuðborg Lettlands í gær. Fjórir Íslenskir skákmenn taka þátt. Það eru stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412), alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2453) og skákmeistararnir Stefán Bergsson (2190) og Gauti Páll Jónsson (2057).
Mótið er semi-túrbómót. Tefldar eru 9 umferðir á 7 dögum.
Helgi Áss og Gummi unnu í gær en Stefán og Gauti Páll töpuðu. Stigamunur var mikill. Úrslit 1. umferðar

Tvær umferðri fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 8 og sú síðari hefst kl. 14. Röðun 2. umferðar

- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 8, 12 og 14)
Summer Prague Open
Lenka Ptácníková (2089) og Sigurður Ingason (1796) taka þátt í níu umferða opnu móti í Prag dagana 2. -9. ágúst.
Fimmta umferð fór fram í gær. Lenka og Sigurður gerðu bæði jafntefli. Lenka hefur 2,5 vinninga en Sigurður hefur 1 vinning.
Sjötta umferð fer fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Split Open
Dagana 3.-11. ágúst fer fram alþjóðlega mótið Split Open í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson (1740), Páll Þórsson (1725) og Iðunn Helgadóttir (1117) taka þátt.
Þau töpuðu öll í gær. Helgi og Páll hafa 1 vinning en Iðunn hefur hálfan vinning.
Fjórða umferð fer fram í dag.















