Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2882), beit heldur betur frá sér í lok Sinquefield-mótsins eftir jafntefli í níu fyrstu umferðunum. Hann vann tvær síðustu skákirnar og endaði efstur ásamt Ding Liren (2805).
Í lokaumferðinni vann hann MVL (2778) með svörtu. Á sama tíma gerði Kínverjinn jafntefli við Mamedyarov (2764). Þeir tefla til úrslita um sigurinn á mótinu í atskák. Vinni Carlsen það verður það níundi mótasigur hans á árinu. Hann hefur teflt 90 skákir í röð án taps. Þrátt fyrir sigurinn á mótinu tapar Carlsen rúmum 6 skákstigum fyrir frammistöðuna á mótinu.
Fyrst tefla þeir tvær atskákir (25+10). Verði jafnt tefla þeir allt þremur 2ja skáka einvígi með tímamörkunum 10+3.
Lokastaðan:
Nánari umfjöllun á Chess.com.
- Auglýsing -















