Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412) hefur 4½ af loknum 7 umferðum á alþjóðlega mótinu á Krít. Helgi tapaði fyrir rússneska stórmeistarann Evgeny Levin (2502) í sjöttu umferð en gerði jafntefli við úkraínska alþjóðlega meistarann Peng Li Min (2487) í þeirri sjöundu.
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag og hefst kl. 13. Helgi mætir í dag alþjóðlega meistaranum Dusan Lekic (2330) en sá er Svartfellingur. Mótinu lýkur svo á morgun.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Chess24) – hefjast flestar kl. 13
- Auglýsing -















