Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2410) hefur 4 vinninga að loknum sjö umferðum á lokuðu móti á grísku eyjunni Krít. Helgi hefur unnið tvær skákir, tapað einni og gert fjögur jafntefli.
Úrslit Helga
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Umferðin hefst kl. 14 Mótinu lýkur á morgun með lokaumferðinni sem hefst kl. 8.
Tíu skákmenn taka þátt í flokknum og er Helgi fjórði í stigaröð keppenda. Meðalstig flokksins eru 2401 skákstig.
Áfram Helgi!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast allar kl. 14 nema lokaumferðin kl. 8)
- Auglýsing -

















