Tveimur umferðum er nú lokið á Opna Suðurlandsmótinu og leiða stórmeistarnir tveir, Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson með fullt hús eftir þær.
Úrslit hafa almennt verið nokkuð eftir bókinni með nokkrum undantekningum. Hörður Garðarsson náði góðu jafntefli gegn alþjóðlega meistaranum Davíð Kjartanssyni í 1.umferð.

Í 2. umferð fór sterkir menn strax að mætast. Hjörvar lagði Jón Viktor að velli á efsta borði með kröftugri byrjanataflmennsku. Vignir Vatnar og Guðmundur Kjartansson skildu jafnir á öðru borði og Bragi Þorfinnsson hafði betur gegn Gauta Páli eftir yfirsjón hjá Gauta.

Ingimundur hafði betur gegn bróður sínum Úlfhéðni í Suðurlandsbræðraslagnum.

Úrslit 2. umferðar

Staðan eftir 2. umferð

Í þriðju umferð á sunnudaginn fær Bragi hvítt gegn Hjörvari í stórmeistaraslagnum.















