Jón Eggert Hallsson vann sigur á Meistarmóti Hugins/Framsýnarmótinu 2019 sem fram fór á Húsavík um helgina. Jón Eggert fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Krisztian Toth varð í öðru sæti með 5 vinninga og Vigfús Ó Vigfússon varð þriðji með 4 vinninga og hafði þar betur á stigum þar sem Rúnar Ísleifsson endaði einnig með 4 vinninga.
8 keppendur tóku þátt í mótinu en nokkur forföll urðu til þess að fleiri tóku ekki þátt.
Myndirnar tók Ingibjörg Edda Birgisdóttir.
- Auglýsing -
















