Borgarskákmótið

    0
    332
    Hvenær:
    18. ágúst, 2022 @ 15:00 – 17:00
    2022-08-18T15:00:00+00:00
    2022-08-18T17:00:00+00:00
    Hvar:
    Ráðhús Reykjavíkur
    Tjarnargata 11
    101 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Ríkharður Sveinsson
    Borgarskákmótið @ Ráðhús Reykjavíkur | Reykjavík | Ísland

    Borgarskákmótið fer fram fimmtudaginn 18. ágúst, og hefst það kl. 15:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur Taflfélag Reykjavíkur að mótinu.

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst í skráningarforminnu til að liðka fyrir mótshaldi.

    Þetta er í 37. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Helgi Áss Grétarsson, sem þá tefldi fyrir Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.

    Verðlaun:

    1.sæti 30.000 kr.

    2.sæti 20.000 kr.

    3.sæti 10.000 kr.

    Skráningarform

    Þegar skráðir keppendur

    Sjá heimasíðu TR

    - Auglýsing -