Meistaraflokks fimmtudagsmót TR 1900+ elo

    0
    23
    Hvenær:
    3. september, 2026 allan daginn
    2026-09-03T00:00:00+00:00
    2026-09-04T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    1000kr.
    Meistaraflokks fimmtudagsmót TR 1900+ elo @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Skákmót fyrir alla með meira en 1900 Fide stig. Hefðbundið opið fimmtudagsmót fellur niður. Tefldar eru 10 skákir og tímamörkin eru þrjár mínútur á skákina að viðbættum tveimur sekúndum á hvern leik, 3+2. Teflt er í einum flokki. Mótin eru reiknuð til alþjóðlegra hraðskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Þorsteinn Magnússon.

    Kynning mótaraðarinnar:

    Taflfélag Reykjavíkur kynnir nýja hraðskákmótaröð!

    Komandi skákvetur mun fyrsta fimmtudagsmót hvers mánaðar hjá Taflfélagi Reykjavíkur verða með stigalágmarki upp á 1900 hraðskákstig. Allir skákmenn yfir 1900 hraðskákstig geta tekið þátt.
    Hefðbundnu fimmtudagsmótin sem eru opin öllum eru áfram á sinni dagskrá nema fyrsta hvers mánaðar þegar stigalágmarkið gildir. Efstu þrír keppendur á hverju hefðbundnu fimmtudagsmóti öðlast þátttökurétt á yfirstandandi meistaraflokksmótaröð sem lýkur í maí. Þannig geta skákmenn undir 1900 stigum unnið sér inn rétt til þátttöku í mótaröðinni.

    Fimmtudagsmótin með stigalágmarki munu bera heitið „Meistaraflokksmót“.
    Meistaraflokksmót vetrarins frá september til og með maí mynda samana Meistaraflokksmótaröðina þar sem keppendur vinna sér inn stig á hverju móti. Sex bestu mót hvers keppenda gilda.
    Fyrir mótaröðina eru verðlaunin:
    1. 80.000 kr.
    2. 50.000 kr.
    3. 20.000 kr.

    Með Meistaraflokksmótunum er markmiðið m.a. að gefa sterkustu ungu félagsmönnum Taflfélagsins tækifæri á fleiri hraðskákum við sterka menn en þeir fá á opnu félagsmótunum. Jafnframt myndast fleiri tækifæri fyrir sterkari skákmenn landsins til að tefla saman.

     

    Þátttökugjald eru eftirfarandi:

    1000 krónur.

    Stórmeistarar: Ókeypis

    Heimilisfang / Adress: https://ja.is/taflfelag-reykjavikur-skakheimili/

    - Auglýsing -