
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2023-24 fer fram dagana 29. febrúar – 3. mars nk. Teflt er í Rimaskóla.
Kvikudeildin verður tefld frá fimmtudegi-sunnudags. Aðrar deildir verða tefldar laugardag-sunnudag.
| Tímasetning | Úrvalsdeild | Aðrar deildir |
| Fimmtud., 29. feb. kl. 19:00 | 6. umf. | |
| Föstud., 1. mars kl. 19:00 | 7. umf. | |
| Laugard., 2. mars, kl. 11:00 | 8. umf. | 5. umf. |
| Laugard., 2. mars, kl. 17:30 | 9. umf. | 6. umf. |
| Sunnud., 3. mars, kl. 11:00 | 10. umf. | 7. umf. |
Í úrvalsdeild verða tímamörkin til reynslu þetta keppnistímabilið 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartíminn hefðbundin eða 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.
Opið er fyrir félagaskipti þeirra sem ekki tefldu í fyrri hlutanum til 9. febrúar nk. Þessi regla á þó eingöngu um þá sem hafa lögheimilli hérlendis og/eða hafa íslenskan ríkisborgararétt. Þeir sem eru utan taflfélaga (og tefldu ekki í fyrri hlutanum) og eru án alþjóðlegra kappskákstiga geta þó ávallt skráð sig í félag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga








