Jólapakkaskákmótið 2026

    0
    7

    Jólapakkaskákmót Taflfélags Garðabæjar verður sunndaginn 20. desember næstkomandi í Miðgarði í Garðabæ. Í fyrra voru yngri flokkar fyrir hádegi en eldri eftir hádegi. Skýrist þegar nær dregur. Mótið í ár er haldið með stuðningi Rótaryklúbbsins Hof í Garðabæ.

    Amk. 3 jólapakkar verða í verðlaun fyrir bæði stráka og stelpur í hverjum flokki auk amk. 3 happdrættisvinninga og er reiknað með að keppt verði í allt að 6 aldursflokkum auk peðaskákar fyrir þau yngstu. Allir keppendur fá glaðning að móti loknu að venju.

    Tímamörk 7 mínútur á skák. Reiknað er með 5 umferðum í hverjum flokki að því gefnu að hver flokkur sé ekki stærri en 32 keppendur.

    • A flokkur börn og unglingar fædd 2010 til 2012.
    • B flokkur börn fædd 2013 til 2014
    • C flokkur börn fædd 2015 til 2016
    • D flokkur börn fædd 2017.
    • E flokkur börn fædd 2018
    • F flokkur börn fædd 2019 og yngri
    • Peðaskák er svo tilvalin fyrir börn sem kunna ekki að máta.

    Nánari upplýsingar í með því að senda póst á tg@tafl.is

    Mótsstaður: Miðgarður, fjölnota íþróttahús, Vetrarmýri 18, Garðabæ
    Skráning opnar síðar.

    - Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn