Meistaramót Truxva 2026

    0
    7
    Kristófer, Arnar, Helgi, Gauti, Theodór.
    Hvenær:
    22. júní, 2026 allan daginn
    2026-06-22T00:00:00+00:00
    2026-06-23T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    6919937
    Meistaramót Truxva 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 22. júní, í Friðrikssal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í tíunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 19:00. 

    Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Verðlaun:

    • 1.sæti 25.000 kr.
    • 2.sæti 15.000 kr.
    • 3.sæti 10.000 kr.
    • U2000 Bókaverðlaun
    • Efsti Truxinn (TR-ingur á grunnskólaaldri) Bókaverðlaun

    Sigursælastir á mótinu eru Vignir Vatnar Stefánsson og Arnar Gunnarsson sem hafa unnið mótið þrisvar sinnum.

    Meistaramótið markar lok starfsárs ungmennahreyfingar Taflfélags Reykjavíkur. Margir af sterkustu hraðskákmönnum þjóðarinnar taka þátt. Sigurvegarar fyrri móta:

     

    Verðlaun skiptast eftir Hort kerfinu og aðeins þrír efstu hljóta verðlaun.

    Þátttökugjald er 1000kr fyrir fullorðna en 500kr fyrir 17 ára og yngri. Ókeypis fyrir IM og GM og 17 ára og yngri í TR. Skráning í mótið fer fram í gegnum hefðbundið skráningarform.

    Skráningarform

    Þegar skráðir

    - Auglýsing -