Skákmeistarinn og einn sterkasti hraðskákmaður landsins, Gauti Páll Jónsson (2103) situr þessa dagana að tafli í Poznan í Póllandi.

Gauta hefur ekki gengið vel með hvítu og tapað öllum sínum skákum.

Gauti er hins snjall með svörtu og taplaus. Í gær gerði hann sitt þriðja jafntefli með svörtu.

Það eru góð tíðindi fyrir Gauta í dag að hann fær aftur svart.

Alls taka 28 skákmenn þátt í flokki Gauta. Þar á meðal þrír stórmeistarar. Gauti er nr. 21 í stigaröð keppenda.

Segja má að mótið sé „gamli skólinn“. Níu umferðir á níu dögum. Umferðir hefjast kl. 10 á morgnanna. Ekki virðist vera boðið upp á beinar útsendingar.

- Auglýsing -