Sjö íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice sem hófst með taflmennsku í a-flokki (2000+) í gær. Taflmennska í öðrum flokkum hefst í dag.

Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.

Adam vann Þjóðverjann Anton Belin (2206) í fyrstu umferð, Lenka gerði gott jafntefli við þýska FIDE-meistarann Danill Yasmo (2261) en Jósef tapaði.

A-flokkur á Chess-Results

Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theódór Eiríksson (1845)

B-flokkur á Chess-Results

Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539)

C-flokkur á Results

Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757)

U30+ á Chess-Results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -