Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2395) vann enska FIDE-meistarann Jude Shearsby (2243) í sjöttu umferð alþjóðlega mótsins í Suessex í gær. Þriðja sigurskák Gumma í röð!

Gummi hefur 4½ vinning og er í 3.-5. sæti – hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.  Stórmeistararnir Stephan Zilka, Tékklandi, og Eldar Gasanov, Úkraínu, eru efstir með 5 vinninga.

Tvær umferðir eru tefldar í dag og hófst sú fyrri kl. 9. Gummi teflir þar við oddafiskinn Gasanov.

Slóð á skák Gumma

Alls taka, 62 skákmenn og þar af fimm stórmeistarar, þátt í flokki Gumma sem er fimmti stigahæsti keppandinn. Meðal keppenda eru stórmeistarnir Simon Williams (2455) og Oleg Korneev (2433). Mótið fer fram 21.-26. júlí.

- Auglýsing -