
Ólympíuskákmót í netskák verður haldið í fyrsta skipti í ár. Það má að sjálfsögðu rekja til Covid-faraldursins. Um er að ræða blönduð lið. Í hverri umferð tefla sex skákmenn frá hverri þjóð.
- Opinn flokkur (2)
- Kvennaflokkur (2)
- U20 – opinn flokkur (1)
- U20 – kvennaflokkur (1)
Jafnmargir varamenn frá hverri þjóð. Ingvar Þór Jóhannesson er liðsstjóri hópsins og landsliðseinvaldur. Lið Íslands skipa 12 skákmenn.
Landslið Íslands á fyrsta (og kannski eina?) Ólympíuskákmóti í netskák skipa:
| Flokkur | Aðalmenn | Varamenn |
| Opinn flokkur | GM Jóhann Hjartarson (2525) | GM Bragi Þorfinnsson (2427) |
| Opinn flokkur | IM Guðmundur Kjartansson (2466) | GM Helgi Áss Grétarsson (2401) |
| Kvennaflokkur | WGM Lenka Ptácníková (2117) | Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935) |
| Kvennaflokkur | WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2009) | WIM Lisseth Acevedo Mendez (1845) |
| U20 – Opinn | FM Vignir Vatnar Stefánsson (2301) | Birkir Ísak Jóhannsson (2146) |
| U20 – stúlkur | Batel Goitom Haile (1587) | Iðunn Helgadóttir (1364) |
Ísland lendir í 2. deild Ólympíuskákmótsins sem fram fer 14.-16. ágúst nk. Þar tefla 50 lið og skipt í fimm tíu liða riðla þar sem allir mæta öllum. Við skiptingu í riðla verður bæði tekið tillit til styrkleika og tímasvæða.
Tefld verður atskák (10+5) og teflt verður á þremur dögum. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli ávinna sér rétt til að tefla í fyrstu deild.
Nánari upplýsingar um Ólympíumótið í netskák má finna á heimasíðu mótsins.










