Reykjavíkurmótið í skólaskák 2026

    0
    16
    Hvenær:
    13. apríl, 2026 allan daginn
    2026-04-13T00:00:00+00:00
    2026-04-14T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    1000
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    6919937
    Reykjavíkurmótið í skólaskák 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Reykjavíkurmótið í skólaskák fer fram mánudaginn 11. apríl í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxafeni 12.

    Teflt verður í þremur einstaklingsflokkum 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppnisrétt hafa þeir krakkar í reykvískum grunnskólum sem teflt hafa með a-sveit síns skóla í einhverri af sveitakeppnum þessa skólaárs (2025-2026). Auk þess hafa allir krakkar úr reykvískum skólum sem hafa skákstig keppnisrétt. Telji skákkennarar/aðstandendur einhverja sem falla ekki undir ofangreind skilyrði eiga erindi á mótið er velkomið að senda fyrirspurn á mótsstjóra.

    Dagskrá:

    1.-4. bekkur: 16:30–18:30

    5.-7. bekkur: 19:00-21:00

    8.-10. bekkur 19:00-21:00 (samtímis 5.-7. bekk)

    Mótsstjóri: Gauti Páll Jónsson (gauti.pall.jonsson@reykjavik.is)

    ATH: Mæting og staðfesting þátttöku er í síðasta lagi 10 mínútum áður en mótið hefst.

    Húsið opnar 16:00.

    Þátttökugjöld eru 1000kr. á mann og greiðist á skákstað. Það er posi á staðnum.

    Umferðarfjöldi og tímamörk verða endanlega ákveðin þegar skráning liggur fyrir en má gera ráð fyrir 7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 5+3.

    Skráningarfrestur er til 22:00 sunnudaginn 12. apríl 

    Efstu þrjú í hverjum flokki hljóta keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák, sem verður á þessu ári á Snæfellsnesi. Oddastigaútreikningur ræður um landsmótssætin, ef jafnt er á vinningum.

    Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger.

    Skráningarform og listi yfir þegar skráða, verður birt síðar. 

    - Auglýsing -