Skákhátíð MótX 2020

    0
    3976
    Samstarf Hugins og Breiðabliks
    Hvenær:
    7. janúar, 2020 @ 19:30 – 23:59
    2020-01-07T19:30:00+00:00
    2020-01-07T23:59:00+00:00
    Hvar:
    Stúkan við Kópavogsvöll
    Dalsmári 5
    Kópavogur
    Ísland
    Tengiliður:
    Jón Þorvalds og Halldór Grétar

    Skákhátíð MótX sem er Gestamót Hugins og Breiðabliks og hefst þriðjudaginn 7. janúar nk. kl 19:30.

    Teflt verður einu sinni í viku, á þriðjudagskvöldum: 7., 14., 21., 28.jan + 4., 11. og 18.feb. kl. 19:30.

    Tímamörk: 40 leikir á 90 mín. Þá bætast við 15. mín til að ljúka skákinni. Auk þess bætast alltaf við 30 sek. fyrir hvern leik.

    Teflt verður í hinum vistlegu húsakynnum Skákdeildar Breiðabliks í stúkunni við Kópavogsvöll.

    Ekkert þátttökugjald og góðar aðstæður fyrir skákmenn til að sýna sínar bestu hliðar í taflmennskunni.

    Tefldar verða 7 umferðir og verða leyfðar þrjár yfirsetur.

    Mótið verður tvískipt: A-flokkur:  yfir 2.200 elóstig og B-flokkkur: undir 2.200 stigum

    Vegleg verðlaun verða í boði að vanda og í B-flokki verða verðlaun 50% af verðlaunaupphæðum í A-flokki.

    Hámarksfjöldi í A-flokki: 34 keppendur.

    Hámarksfjöldi í B-flokki: 40 keppendur.

    A-flokkur

    Aðalverðlaun:

    1. 100þús
    2. 60þús
    3. 40þús

    Ef keppendur verða jafnir að vinningum í verðlaunasætum þá er svokölluð Hort-regla notuð til að skipta peningaverðlaunum.

    Auk þess keppa félagsmenn í Skáksambandi Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness um félagstitil.

    B-flokkur

    Þrenn peningaverðlaun eru í boði og tvö efstu sætin gefa rétt á taflmennsku í A-flokki á næsta ári.

    1. 50þús
    2. 30þús
    3. 20þús

    Ef keppendur verða jafnir að vinningum í verðlaunasætum þá er svokölluð Hort-regla notuð til að skipta peningaverðlaunum.

    Auk þess keppa iðkendur hjá Skákdeild Breiðabliks um titilinn Unglingameistari Breiðabliks.

    Nánari mótsreglur verða sendar keppendum.

    - Auglýsing -