Dalsmári 5
Kópavogur
Ísland

Skákhátíð MótX sem er Gestamót Hugins og Breiðabliks og hefst þriðjudaginn 7. janúar nk. kl 19:30.
Teflt verður einu sinni í viku, á þriðjudagskvöldum: 7., 14., 21., 28.jan + 4., 11. og 18.feb. kl. 19:30.
Tímamörk: 40 leikir á 90 mín. Þá bætast við 15. mín til að ljúka skákinni. Auk þess bætast alltaf við 30 sek. fyrir hvern leik.
Teflt verður í hinum vistlegu húsakynnum Skákdeildar Breiðabliks í stúkunni við Kópavogsvöll.
Ekkert þátttökugjald og góðar aðstæður fyrir skákmenn til að sýna sínar bestu hliðar í taflmennskunni.
Tefldar verða 7 umferðir og verða leyfðar þrjár yfirsetur.
Mótið verður tvískipt: A-flokkur: yfir 2.200 elóstig og B-flokkkur: undir 2.200 stigum
Vegleg verðlaun verða í boði að vanda og í B-flokki verða verðlaun 50% af verðlaunaupphæðum í A-flokki.
Hámarksfjöldi í A-flokki: 34 keppendur.
Hámarksfjöldi í B-flokki: 40 keppendur.
A-flokkur
Aðalverðlaun:
- 100þús
- 60þús
- 40þús
Ef keppendur verða jafnir að vinningum í verðlaunasætum þá er svokölluð Hort-regla notuð til að skipta peningaverðlaunum.
Auk þess keppa félagsmenn í Skáksambandi Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness um félagstitil.
B-flokkur
Þrenn peningaverðlaun eru í boði og tvö efstu sætin gefa rétt á taflmennsku í A-flokki á næsta ári.
- 50þús
- 30þús
- 20þús
Ef keppendur verða jafnir að vinningum í verðlaunasætum þá er svokölluð Hort-regla notuð til að skipta peningaverðlaunum.
Auk þess keppa iðkendur hjá Skákdeild Breiðabliks um titilinn Unglingameistari Breiðabliks.
Nánari mótsreglur verða sendar keppendum.










