Sunnudaginn 18. nóvember kl. 20:00 mætir Team Iceland þéttu liði Ekvador í Heimskeppninni í netskák (LCWL).
Lið Ekvador er nokkuð þétt en líklega talsvert lakara en liðin sem við höfum teflt við undanfarið. Þá má þó ekki vanmeta og eru því allir hvattir til að mæta til leiks.
Staðan í hraðskákinni eftir fjórar umferðir er þannig að Ísland er sem stendur í 4. sæti, en hafa verður í huga að Ísland er búið að tefla við öll stærri liðin í keppninni (Úkr, Rús og Serb) en Serbar eiga eftir að mæta Úkraínu og Rússlandi.
Team Iceland þarf að vinna þær viðureignir sem eftir eru og ætti það að duga okkur til að komast í úrslit. Úrslitakeppnin fer þannig fram að efstu fjögur tefla allir við alla um efsta sætið. Liðin taka með sér stigin úr deildinni og gilda úrslit úr úrslitakeppninni tvöfalt, þ.e. tvö stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli.
Staðan í leifturskákinni er þannig að Ísland er í 2. sæti eftir fjórar umferðir. Við höfum þegar teflt við öll stóru liðin þar og ættum því að halda því sæti nokkuð örugglega. Úkraína er með fullt hús í 1. sæti, en þeir eiga enn eftir að tefla við Serbíu.
HVENÆR?
Ekvador – SUNNUDAGINN 18. NÓVEMBER KL. 20:00 (LEIFTUR- OG HRAÐSKÁK)
Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 20:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú viðureign kl. 20:20.
Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
DAGSKRÁIN
- Sunnudagur 18. nóvember kl. 20:00 – Bullet keppni 1/1 (Ísland – Ekvador) ( https://www.chess.com/live#tm=1953 )
- Sunnudagur 18. nóvember kl. 20:20 – Hraðskák 5/2 (Ísland – Ekvador) ( https://www.chess.com/live#tm=1954 )
TENGLAR
- Vefsíða Team Iceland á Facebook: Hér
- Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
- Meðlimir Team Iceland: Hér
- Leifturskákin, staða og pörun: Hér
- Hraðskákin, staða og pörun: Hér
- Reglur LCWL: Hér














