Sunnudaginn 4. nóvember verða tvær viðureignir í Heimsdeildinni í netskák. Fyrst er „fullorðin“ viðureign við grjóthart lið Rússa (leiftur- og hraðskák) og að því loknu fer fram stutt viðureign í leifturskák við lið Kanada.
Viðureiginin við Rússa verður mjög stór, enda eru þeir með fjölmennasta liðið í deildinni. Þeir hafa verið að mæta með allt að 100 manns (gegn Úkraínu) og gætu allt eins stillt upp 1000 eða jafnvel fleiri, ef þeir bara vildu.
Ljóst er að lið Íslands þarf að vera eins fjölmennt og öflugt og mögulegt er og eru því allir hvattir til að mæta, og þeir sem enn hafa ekki tekið þátt í vetur, hvattir til að skrá sig í liðið og taka þátt í þessum skemmtilegu viðureignum.
Lið Íslands á ágæta möguleika á sigri í þessari viðureign ef okkur tekst að manna liðið sæmilega. Rússar mæta ekki endilega alltaf með sitt sterkasta lið og má nefna t.d. nýlega viðureign þeirra gegn Slóvakíu (hér) en þar mættu þeir með lið sem Team Iceland á skilyrðislaust að vinna nokkuð auðveldlega.
HVENÆR?
Rússland – Sunnudaginn 4. nóvember kl. 18:00 (Leiftur- og hraðskák)
Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 18:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú viðureign kl. 18:20.
Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.
Kanada – Sunnudaginn 4. nóvember kl. 19:00 (Leifturskák)
Kanda teflir í þriðju deildinni í hraðskák, en leifturskákin er bara ein deild og því teflum við endrum og eins tvær viðureignir í sömu vikunni. Reynt verður að spyrða þessum viðureignum saman svo ekki þurfi að mæta sérstaklega til að tefla við smærri liðin í leifturskákinni. Viðureignin hefst kl. 19:00 og tekur stutta stund. Tefldar eru tvær 1+1 skákir.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
DAGSKRÁIN
- Sunnudagur 04. nóvember kl. 18:00 – Bullet keppni 1/1 (Ísland – Rússland) ( https://www.chess.com/live#tm=1903 )
- Sunnudagur 04. nóvember kl. 18:20 – Hraðskák 5/2 (Ísland – Rússland) ( https://www.chess.com/live#tm=1904 )
- Sunnudagur 04. nóvember kl. 19:00 – Bullet keppni 1/1 (Ísland – Kanada) ( https://www.chess.com/live#tm=1875 )
TENGLAR
- Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
- Meðlimir Team Iceland: Hér
- Leifturskákin, staða og pörun: Hér
- Hraðskákin, staða og pörun: Hér
- Reglur LCWL: Hér











