Sunnudaginn 28. október mætir Team Iceland liði Úkraínu í Heimsdeildinni í netskák.
Úkraína er eitt allra sterkasta liðið í deildinni. Þeir mættu liði Rússa um síðastliðna helgi og unnu gríðarlega öruggan 129,5 – 58,5 sigur. Alls tefldu liðin á 94 borðum um síðustu helgi en Úkraína var með talsverðan fjölda á varamannabekknum.
Fyrv. heimsmeistarinn Ruslan Ponomariov tefldi með sterku liði Úkraínu um síðustu helgi.
Skoða má síðustu viðureignir Úkraínu hér.
Allir eru hvattir til að taka þátt í þessari risastóru viðureign. Sérstaklega væri ánægulegt að sjá nýliða skrá sig í liðið og taka þátt en nauðsynlegt er að stilla upp eins fjölmennu liði og mögulegt er gegn meistaraliði Úkraínu. Það eina sem nýliðar þurfa að gera er að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.
HVENÆR?
Keppnin verður með sama sniði og undanfarnar vikur, en fyrst er tefld leifturskák og hefst sú viðureign kl. 18:00. Því næst er tefld hraðskák og hefst sú viðureign kl. 18:20. Athugið að keppendur þurfa að skipta um mót á milli viðureigna, en einfaldast er að nota “Tournaments” flipann á Chess.com til þess.

HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Keppendur þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst. Tengill á mótið verður birtur fyrir mót en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com áður en keppnin hefst.
Allir eru hvattir til að ganga í liðið, en ekki er gerð krafa um styrkleika. Því fleiri – því betra!
DAGSKRÁIN
- Sunnudagur 28. október kl. 18:00 – Bullet keppni 1/1 (Ísland – Serbía) ( https://www.chess.com/live#tm=1848 )
- Sunnudagur 28. október kl. 18:20 – Hraðskák 5/2 (Ísland – Serbía) ( https://www.chess.com/live#tm=1847 )
TENGLAR
- Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
- Meðlimir Team Iceland: Hér
- Leifturskákin, staða og pörun: Hér
- Hraðskákin, staða og pörun: Hér
- Reglur LCWL: Hér










