Þriðjudagsmót (TR) – 15+5 4 umferðir

    0
    637
    Hvenær:
    31. mars, 2020 @ 19:30
    2020-03-31T19:30:00+00:00
    2020-03-31T19:45:00+00:00
    Hvar:
    chess.com
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455
    Þriðjudagsmót (TR) - 15+5 4 umferðir @ chess.com

    Þriðjudaginn 31. mars verður 4 umferða atskákmót með 15 mínútna + 5 sek á leik umhugsunartíma. Fyrirmyndin er að sjálfsögðu hin vinsælu Þriðjudagsmót TR sem haldin hafa verið um langt árabil.

    Tengill: https://www.chess.com/live#t=1171540

    HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?

    Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.

    Tengill á mótið sjálft er hér að ofan, en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com/live áður en mótið hefst.


    Félag Íslendinga á Chess.com, Team Iceland, mun standa fyrir fjölmörgum skákviðburðum á netinu næstu vikurnar. Leitast verður við að spegla vinsæla skákviðburði og fasta liði í mótaáætlun skákhreyfingarinnar.

    Mótin eru að sjálfsögðu opin öllum Íslendingum og það kostar ekkert að taka þátt!

    - Auglýsing -