Héðinn Steingrímsson Íslandsmeistari í skák

0
1472

Héðinn Steingrímsson varð rétt í þessu Íslandsmeistari í skák.  Hann sigraði Henrik Danielsen í fjörlegri skák þar sem Henrik teygði sig langt í leit að vinningi en Héðinn varðist yfirvegað og komst aldrei í hættu.  Bragi Þorfinnsson og Guðmundur Kjartansson gerðu jafntefli og því mistókst Braga að ná sér í stórmeistaraáfanga.
Þetta er annar Íslandsmeistaratitilll Héðins.  Sá fyrri kom í hús í Höfn í Hornafirði árið 1990, þegar Héðinn sló aldursmet, sem enn stendur en þá var hann aðeins 15 ára.   Þetta er í annað skipti sem mótið fer fram á Austurlandi og svo virðist sem það henti Héðni vel að tefla þar.

Héðinn hlaut 7,5 vinning og leiddi mótið allt frá byrjun.  Bragi varð annar með 6,5 vinning og Henrik þriðji með 6 vinninga.    Verðskuldaður sigur Héðins sem tefldi best allra á mótinu og var taplaus.

Með sigrinum tryggir Héðinn sér þátttökurétt í landsliði Íslands sem Íslandsmeistari og þátttökurétt á EM einstaklinga á næsta ári.

Lokastaðan:

Rank Name Rtg Pts
1 GM Hedinn Steingrimsson 2554
2 IM Bragi Thorfinnsson 2417
3 GM Henrik Danielsen 2533 6
4 IM Stefan Kristjansson 2483
GM Throstur Thorhallsson 2387
6 FM Robert Lagerman 2320 4
7 Gudmundur Gislason 2291 3
8 FM Ingvar Thor Johannesson 2338 3
9 IM Gudmundur Kjartansson 2327
10 Jon Arni Halldorsson 2195