Að loknu Íslandsmóti á Eiðum

0
923

Þá er skemmtilegu og spennandi Íslandsmóti lokið.  Mótið fer í sögubækurnar fyrir ýmislegt.  Langt er síðan 3 stórmeistarar tóku þátt, langt er síðan mótið var jafn spennandi, það þarf að fara áratugi aftur í tímann til að finna 10 manna mót, það þarf að fara 21 ár aftur í tímann síðan mótið fór síðast fram á Austurlandi og einnig 21 ár aftur í tímann síðan Héðinn vann síðast!  Að sigurlaunum fékk Héðinn 200.000 kr., öruggt sæti í landsliði Íslands og þátttökurétt á EM einstaklinga að ári.  Ekki amaleg verðlaun!

Lokaumferðin var spennandi.  Það var ljóst að Henrik ætlaði sér sigur og ekkert annað og tók áhættu í skákinni sem hann hefði annars sjálfsagt ekki tekið.  Héðinn lét Henrik ekki slá sig út af laginu, tefldi af miklu öryggi, og hafði sigur.

Þar sem ekki var flogið á Páskadag og síðasta flug heim í gær kl. 18 var ákveðið að byrja lokaumferðina kl. 9.   Strax að lokinni umferð var brunað niður í Hótel Hérað þar sem bæjarstjórnin hélt okkur lokahóf, þar sem okkur var boðinn seinbúinn bröns.    Björn Ingimarsson, bæjarstjóri gaf öllum keppendum bók um Eiða og vonaðist til að sjá okkur sem fyrst aftur fyrir austan.

Aðstæður á Eiðum voru góðar.  Salurinn er gamall og það brakaði í gólfum en austanmenn tóku á því með því að flytja tepparenning af 2. hæð niður.  Vel rúmt var í skáksalnum, hátt til lofts og gott loft gerðu hátíðarsalinn að fyrirmyndar skáksal.

Austanmenn fá sérstakar þakkir fyrir frábæra frammistöðu.  Þeir Magnús Ingólfsson, Magnús Valgeirsson, Jón Björnsson, Rúnar Hilmarsson og Guðmundur Ingvi Jóhannsson voru ákaflega hjálpfúsir við okkur gestina á allan hátt.  Hvort sem var um að ræða akstur, aðstoð við nettengingar, matargerð og alls konar reddingar, voru þeir ávallt boðnir og búnir.  Rúnar, sem er menntaður kjötiðnarmaður aðstoðaði Róbert við lambalærið sem SÍ bauð upp fyrir lokaumferðina.   Að öðrum ólöstuðum vil ég þó sérstaklega þakka Guðmundi fyrir alla hans aðstoð og þá auðsýndu þolinmæli sesm hann sýndu okkur sunnanmönnum.  Á myndina vantar Magnús Ingólfsson sem átti ekki heimangengt á lokahófið.

Héðinn fékk 7½ vinning í 9 skákum.  Árangur hans samsvarar 2639 skákstigum og hækkar hann hann um 9 stig og styrkir þar með stöðu sína sem næststigahæsti skákmaður landsins á eftir Jóhanni Hjartarsyni á maí-listanum.  Héðinn var taplaus á mótinu og var í raun og veru held ég aldrei í taphættu.   Flestir sigrar hans voru öruggir og fremur átakalausir.   Má þar nefna skákina gegn Róberti þar sem Héðinn fórnaði skiptamun og vann skákina í aðeins 9 leikjum eftir það.   Það var kannski helst á móti Stefáni þar sem hann hafði á köflum óþægilega stöðu þótt hann væri skiptamun yfir og staðan ávallt betri á hann samkvæmt tölvuforritum sem vanmáttu bersýnilega stöðu Stefáns.  Sanngjarn sigur Héðins á mótinu en hann tefldi án efa best allra á mótinu.

Bragi varð annar með 6½ vinning og grátlega nærri áfanga að stórmeistaratitli.  Bragi var einnig taplaus en gerði 5 jafntefli og aðeins vantaði hálfan vinning í áfangann.   Bragi hækkar um 16 stig.  Frískleg og örugg taflmennska hjá Braga.  Bragi komst verulegan í krappann gegn Gíslasyni í næstsíðustu umferð en lenti annars aldrei í taphættu.

Henrik Danielsen varð þriðji með 6 vinninga var alltan tímann í toppbaráttunni.  Henrik er mikill vinnuhestur og lét sér ekki duga að tefla heldur sendi reglulega pistla á Chessdom á meðan mótinu stóð.  Henrik kom beint á Reykjavíkurflugvöll af Keflavíkurflugvelli þar sem hann var að tefla erlendis og fór út í morgun á alþjóðlegt mót í Lubeck í Þýskalandi.   Henrik tapar fjórum stigum fyrir frammistöðu sína.

Stefán Kristjánsson og Þröstur Þórhallsson urðu í 4.-5. sæti.   Þröstur hækkar um 10 stig en Stefán lækkar um 3 stig.   Báðir tefldu þeir á köflum vel og taflmennska beggja batnaði þegar á mótið leið.  Mér fannst taflmennska Stefáns t.d. gegn Héðni ákaflega merkileg og skiptamunnsfórnin í þeirri skák ákaflega menntuð.   Þröstur átti að mínu mati skák mótsins gegn Guðmundi Kjartanssyni.

Róbert Lagerman varð sjötti með 4 vinninga og getur vel við unað.  Skákin gegn Guðmundi var t.d. góð sem og jafnteflisskákin gegn Þresti í lokaumferðinni.   Róbert hækkar um 5 stig fyrir frammistöðuna.

Guðmundur Gíslason og Ingvar Þór Jóhannesson urðu í 7.-8. sæti með vinninga.  Guðmundur tefldi langmest allra, sat lengst allra í 7 fyrstu umferðunum en átti aðeins „næstlengstu“ skákirnar í lokaumferðunum tveimur.  Guðmundur var hins vegar ákaflega seinheppinn og missti niður hvað eftir annað unnar stöður niður í jafntefli, t.d. gegn Henrik, Braga og Ingvari.  Ingvar náði sér aldrei á strik.  Báðir tapa þeir stigum.   Gummi tapar 5 stigum en Ingvar 14 stigum.

Guðmundur Kjartansson varð næstneðstur 2½ vinning.  Gummi byrjaði hræðilega, lagði t.d. of mikið á stöðuna gegn Henrik í fyrstu umferðinni.  Guðmundur lækkar um 13 stig fyrir frammistöðuna sína.

Jón Árni Halldórsson varð neðstur með 1½ vinning og tapar 10 stigum.  Fyrirfram var vitað að mótið yrði erfitt fyrir Jón enda langstigalægstur keppenda.

Sjálfur sá ég um skákstjórn sem gekk þrautalaust fyrir sig og útsendingarstjórn sem reyndist mér snúin áköflum, þrátt fyrir góða kennslu Halldórs Grétars, og þar gerði ég t.d. byrjendamistök í 2. umferð við litla gleði sumra Hornverja sem töluðu jafnvel um amatörisma! Ég veit að þetta verður mér mun minna mál næst.

Allir aðilar sem styrktu við mótið fá þess sérstakar þakkir.  Austanmenn báru þungann af fæði keppenda og gistingu og gerðu það vel að öllu leyti.   Flugfélagið studdi vel við okkur og fá miklar þakkir sem og Bílaleigan Hertz.

Keppendum þakka ég kærlega fyrir skemmtilegt mót.  Héðni óska ég sérstaklega til hamingju verðskuldaðan sigur á Íslandsmótinu.  Ég veit það mun verða skemmri tími en 21 ár í næsta Íslandsmeistaratitil Héðins!

Fullt af myndum frá lokahófinu má nú finna í myndaalbúmi mótsins.

Gunnar Björnsson