Hjörvar öruggur sigurvegari áskorendaflokks – Davíð og Halldór þurfa að há aukakeppni

0
947

Hjörvar Steinn Grétarsson (2456) vann öruggan sigur í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák sem lauk í dag.  Hjörvar vann Jóhann H. Ragnarsson (2085) í lokaumferðinni og varð langefstur með 8½ vinning.  Halldór Pálsson (1965) vann óvæntan sigur á Davíð Kjartanssyni (2275) í lokaumferðinni og náði honum að vinningum en þeir hlutu 7 vinninga. Þeir þurfa að há einvígi um sæti í landsliðsflokki að ári.  Gylfi Þórhallsson (2173) og Páll Sigurðsson (1965) urðu í 4.-5. sæti með 6½ vinning.

Aukaverðlaunhafar urðu sem hér segir:

  • Undir 2000 – Halldór Pálsson
  • Undir 1600 – Oliver Aron Jóhannesson
  • Stigalaus: Svandís Ósk Ríkharðsdóttir
  • U-16 – Mikael Jóhann Karlsson
  • Kvennaverðlaun: Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir

Oliver var raun og veru efstur í tveimur flokkum því hann var einnig efstur í flokki 16 ára og yngri.  Reglurnar eru hins vegar þannig að aðeins mátti vinna ein aukaverðlaun.  Mikael Jóhann Karlsson tók þar með verðlaun í u-16 flokknum sem annar maður.

Ritstjóri tók fjölda mynda í dag sem finna má í myndaalbúmi mótsins.

Skákstjórar voru Ólafur S. Ásgrímsson og Ríkharður Sveinsson.

Lokastöðu má finna á Chess-Results.