Ekki minnkar spennan á Íslandsmótinu í skák.  Allir toppmennirnir gerðu jafntefli í 10. og næstsíðustu umferð sem fram fór í kvöld.  Þröstur Þórhallsson gerði jafntefli við Sigurbjörn Björnsson, Bragi Þorfinnsson við Guðmund Gíslason og Henrik Danielsen við Hannes Hlífar Stefánsson eftir að hafa saumað að honum lengi vel.  Þröstur og Bragi hafa 7 vinninga en Henrik hefur 6,5 vinning.  Bragi og Henrik mætast í lokaumferðinni en Þröstur teflir við Guðmund Kjartansson.  Lokaumferðin hefst kl. 13 á morgun en teflt er í Stúkunni á Kópavogsvelli.

Hart var barist í umferðinni eins og hingað til og þótt aðeins einni skák hafi ekki lokið með jafntefli.  Davíð Kjartansson vann Guðmund Kjartansson og er sá keppandi sem hefur komið mest á óvart á mótinu en hann er í 5. sæti með 5,5 vinning.  Dagur Arngrímsson er fjórði með 6 vinninga.

Úrslit 10. umferðar:

  • Þröstur Þórhallsson (6,5) – Sigurbjörn Björnsson (3,5) 0,5-0,5
  • Guðmundur Gíslason (3,0) – Bragi Þorfinnsson (6,5) 0,5-0,5
  • Henrik Danielsen (6,0) – Hannes Hlífar Stefánsson (4,0) 0,5-0,5
  • Einar Hjalti Jensson (3,0) – Dagur Arngrímsson (5,5) 0,5-0,5
  • Davíð Kjartansson (4,5) – Guðmundur Kjartansson (4,5) 1-0
  • Björn Þorfinsson (3,0) – Stefán Kristjánsson (4,0) 0,5-0,5

Staðan:

  • 1.-2. Þröstur Þórhallsson og Bragi Þorfinnsson 7 v.
  • 3. Henrik Danielsen 6,5 v.
  • 4. Dagur Arngrímsson 6 v.
  • 5. Davíð Kjartansson 5,5 v.
  • 6.-8. Guðmundur Kjartansson, Stefán Kristjánsson og Hannes Hlífar Stefánsson 4,5 v.
  • 9. Sigurbjörn Björnsson 4 v.
  • 10.-12. Guðmundur Gíslason, Einar Hjalti Jensson og Björn Þorfinnsson 3,5 v.

Röðun lokaumferðinnar:

(hefst kl. 13 í Stúkunni á Kópavogsvelli):

  • Bragi Þorfinnsson (7,0) – Henrik Danielsen (6,5)
  • Guðmundur Kjartansson (4,5) – Þröstur Þórhallsson (7,0)
  • Dagur Arngrímsson (6,0) – Davíð Kjartansson (5,5)
  • Hannes Hlífar Stefánsson (4,5) – Einar Hjalti Jensson (3,5)
  • Stefán Kristjánsson (4,5) – Guðmundur Gíslason (3,5)
  • Sigurbjörn Björnsson (4,0) – Björn Þorfinnsson (3,5)

Vefsíður