Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2169) og Benedikt Briem (2062) eru efstir og jafnir með fullt hús eftir 3. umferð áskorendaflokks Íslandsmótsins í skák sem fram fór í kvöld. Aleksandr vann Arnar Milutin Heiðarsson (2019) og Benedikt lagði Gauta Pál Jónsson (2064) að velli.
Þrír Jóhannar eru jafnir í 3.-5. sæti með 2½ vinning. Það er Ingvason (2172), Arnar Finnsson (1805) og Ragnarsson (1913).
Fjórað umferð fer fram á morgun og hefst kl. 18. Aleksandr mætir Jóhanni Ingvasyni og hinir Jóhannarnir tefla saman. Benedikt tekur hálfs vinnings yfirsetu.
Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki að ári.