Sjötta umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 16. Teflt er við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi og eru áhorfendur velkomnir.

Stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) og Hannes Hlífar Stefánsson (2542) eru efstir og jafnir með 3½ vinning. Héðinn Steingrímsson (2538), Vignir Vatnar Stefánsson (2501) og Guðmundur Kjartansson (2430) eru í 3.-5. sæti með 3 vinninga.

Viðureignir 6. umferðar

  • Hannes Hlífar Stefánsson (3½) – Vignir Vatnar Stefánsson (3)
  • Hjörvar Steinn Grétarsson (3½) – Alexander Oliver Mai (1½)
  • Guðmundur Kjartansson (3) – Þröstur Þórhallsson (2½)
  • Símon Þórhallsson (½) – Héðinn Steingrímsson (3)
  • Bragi Þorfinnsson (2½) – Heilmir Freyr Heimsson (2)

Mótið á Chess-Results

Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar og hefst því upp úr kl. 17 í dag.

Skákvarpið á Twitch

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu á má nálgast á ýmsum stöðum þar.

Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.