Hjörvar Steinn Grétarsson (2456) vann öruggan sigur í áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák sem lauk í dag. Hjörvar vann Jóhann H. Ragnarsson (2085) í lokaumferðinni og varð langefstur með 8½ vinning. Halldór Pálsson (1965) vann óvæntan sigur á Davíð Kjartanssyni (2275) í lokaumferðinni og náði honum að vinningum en þeir hlutu 7 vinninga. Þeir þurfa að há einvígi um sæti í landsliðsflokki að ári. Gylfi Þórhallsson (2173) og Páll Sigurðsson (1965) urðu í 4.-5. sæti með 6½ vinning.
Aukaverðlaunhafar urðu sem hér segir:
- Undir 2000 – Halldór Pálsson
- Undir 1600 – Oliver Aron Jóhannesson
- Stigalaus: Svandís Ósk Ríkharðsdóttir
- U-16 – Mikael Jóhann Karlsson
- Kvennaverðlaun: Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir
Oliver var raun og veru efstur í tveimur flokkum því hann var einnig efstur í flokki 16 ára og yngri. Reglurnar eru hins vegar þannig að aðeins mátti vinna ein aukaverðlaun. Mikael Jóhann Karlsson tók þar með verðlaun í u-16 flokknum sem annar maður.
Ritstjóri tók fjölda mynda í dag sem finna má í myndaalbúmi mótsins.
Skákstjórar voru Ólafur S. Ásgrímsson og Ríkharður Sveinsson.
Lokastöðu má finna á Chess-Results.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar
- Myndaalbúm (Gunnar Björnsson, Helgi Árnason, Ríkharður Sveinsson og Áróra Hrönn Skúladóttir)
- Chess-Results











