Benjamin, Jón Lúðvík og Aryan. Mynd: Ole Kristian Førrisdahl

Bæði Svíar og Norðmenn halda sitt meistaramót yfir hásumarið. Norska meistaramótinu lauk í gær í Sarpsborg. Jon Ludvig Hammer (2631) sigraði á mótinu og vann sinn þriðja Noregsmeistaratitil. Jón Lúðvík hlaut 7,5 vinninga í 9 skákum. Annar varð Aryan Tari (2615) með 6,5 vinninga og þriðji varð hinn 19 ára, Benjamin Haldorsen (2390). Sá síðastanefndi, krækti sér í sinn fyrsta áfanga að stórmeistaratitli.

Í efsta flokki tefldu 22 skákmenn og voru tefldar níu umferðir eftir svissneska kerfinu.

Lokastöðuna má nálgast hér.

Nánari frásögn af gangi mála má finna á helstu skáksíðu Noregs, Bergensjakk.

 

- Auglýsing -