Mikið var um dýrðir þegar skákhátíð KR og sumarmótið við Selvatn á Nesjavallaleið fór fram í miklu blíðviðri við fjallavatnið fagurblátt í gær. Góð þátttaka var að venju þó einhver forföll yrðu á síðustu stundu eins og gengur. Keppendur voru á öllum aldri og nokkrar landsliðskonur í skák krydduðu mótið með þátttöku sinni eins og sjá má á mótstöflunni hér að neðan.
Þetta var í 12. skipti sem slíkt sumar- og fjáröflunarmót er haldið á vegum Skákdeildar KR sem nú keppir í fyrstu deild í Íslandsmóti skákfélaga 4. árið í röð, Fjölmargir stuðningsaðilar styrktu mótið sem og keppendur með taflmennsku sinni. Mikil átveisla var og háð undir beru lofti en meistarakokkar frá Eldhúsi Sælkerans reiddu fram allsnægtaborð í leikhléi. Eftir fjölbreytt sjávarréttahlaðborð sem keppendur borðuðu yfir sig af kom svo að aðalréttinum glóðarsteikri lambasteik með miklu meðlæti. Keppendur trúðu varla sínum eigin bragðlaukum og magamáli.

Taflmennskan í mótinu var mjög lífleg og keppnisandinn í hæstu hæðum. Þau Bragi Halldórsson, Lenka Ptácníková og Róbert Lagerman voru í fyrstu lengst af og voru öll jöfn fyrir síðustu umferð og mikil spenna í lofti. Lenka stóð best að vígi eftir að hafa unnið þá báða, en tapaði síðan óvænt fyrir Ólafi Gísla Jónssyni í lokaumferðinni. Þegar upp var staðið urðu þeir Bragi og Róbert efstir og jafnir að vinningum með 9 v. af 11 mögulegum, en sá síðarnefndi úrskurðaður sigurvegari á mótsstigum. Var þetta í annað sinn sem Róbert vinnur mótið en hann vann það líka fyrir þremur árum og þá varð Bragi annar eins og nú. Bragi vann mótið hins vegar tvo ár í röð árin 2012 og 2013.

Verðlaun voru veitt fyrir 5 efstu sætin. Jón Þór Bergþórsson varð þriðji með 8.5, Lenka Ptácniková fjórða með 8.0 og Ólafur Gísli Jónsson fimmti með 7 vinninga. Eftir það fór að teygjast úr lestinni. Öldungaverðlaun hlaut Magnús Pétursson (85) og ungmennaverðlaun Jósef Omarsson (7). Nokkrir útvaldir fengu svo gjafakort frá veitingastaðnum Höfninni fyrir málsverð handa tveimur. Nýjustu bók Einars Kárasonar rithöfundar fengu svo efstu menn í kaupbæti sem og skákstjórinn Páll Sigurðsson, alþl. dómari að þökkum. Mótið var reiknað til stiga.

Nánari úrslit má sjá hér: http://chess-results.com/tnr366947.aspx?lan=1&art=5&fed=ISL
Skákdeildin, sem Kristján Stefánsson, hrl., formann í forystu, þakkar keppendum, stuðningsaðilum og ekki hvað síst heiðurshjónunum Guðfinni R. Kjartanssyni og Erlu Axelsdóttur húsráðendum í Listaselinu við Selvatn fyrir þátttöku sína, stuðning og fyrirgreiðslu við mótshaldið. /ESE















