Stefán Bergsson í Paracin. Mynd af Facebook.

Reykjavíkurmeistarinn, Stefán Bergsson (2192) vann fjórðu skákina í röð þegar hann lagði serbneska FIDE-meistarann Milan Markovic (2312) örugglega að velli í lokaumferð mótsins í Paracin í morgun.

Þar má kórónaði Stefán glæsilegan endasprett sinn. Eftir að hafa tapað fimm fyrstu skákunum vann hann fjórar síðustu skákirnar!

Í viðtali við Skák.is var Stefán engu að síður hinn hógværasti. Gefum Stefáni orðið:

Það kom í raun aldrei til greina að láta slæm úrslit hafa mikil áhrif á sig. Ég tel það betri nálgun að horfa á frammistöðu og vinnuna sem er lögð í skákina fremur en tímabundna niðurstöðu. Frammistaðan, undirbúningurinn og taflmennskan í fyrstu fimm umferðunum var á margan hátt góð, en of margir fingurbrjótar sem komu oft í tímahraki. Ég verð þó að viðurkenna að fimmta tapið tók aðeins á sálartetrið þar sem allt fór í rugl í hrakinu eftir nokkuð góða skák framan af. En það kvöld ákvað ég að brjóta rútínuna upp og undirbjó ekki skákir morgunsins meir en ég hafði gert fyrir ferðina. Skellti American Pie á skjáinn og úðaði í mig fáeinum öl. Útaf tímahraksvandræðunum var það meðvitað að tefla aðeins hraðar í síðustu skákunum og fá betra flæði í taflmennskuna, leyfa leikjunum að koma til mín í stað fyrir að reyna að þvinga þá fram. Afskaplega ánægjulegt að ná svona endaspretti. Ég fékk það út úr ferðinni sem ég vildi; eyða tugum klukkustunda í skák með það að markmiði að verða aðeins betri. Ég get enn og aftur mælt með taflmennsku í hinum rólega bæ Paracin í Serbíu. Serbar er afskaplega rólegir og þægilegir í viðmóti og Sasa mótshaldari er í heimsmælikvarða í skipulagi og áreiðanleika. Að lokum langar mig að þakka Páli mótsstjóra og Skákgengismanni Þórssyni fyrir félagsskapinn framan af ferð. Glaðvær og traustur maður með góðan smekk fyrir mússík og taflmennsku. Ég stefni á eitt alþjóðlegt mót fyrir áramót og markmiðið er hið sama; að verða aðeins betri í skák.

Stefán endaði í 6.-7. sæti 10 keppenda. Árangur Stefáns samsvaraði 2206 skákstigum og hækkar hann um 4 stig fyrir hana.

Skákin úr lokaumferðinni fylgir með.

- Auglýsing -