Friðrik Ólafsson að tafli við Bobby Fischer.

Í dag, 20 júlí, er alþjóðlegi skákdagurinn. FIDE var stofnað þann dag árið 1924 og fagnar því 84 ára afmæli í dag.

Lítið hefur farið fyrir hátíðarhöldum hérlendis í gegnum tíðina en því meira lagt uppúr íslenska skákdeginum sem fram fer 26. janúar ár hvert á afmælisdegi Friðriks Ólafssonar.

Alþjóðlegi skákdagurinn, fór ekki framhjá vökulum augum umsjónarmanna morgunvaktar Rásar 1. Stórskemmtilegt viðtal við Friðrik Ólafsson, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fyrrum forseta FIDE var þar flutt í morgun.

Ritstjóri mælir eindregið með að menn gefi sér tíma til að hlusta á meistarann.

Viðtalið má finna á vef Rásar 1. Viðtalið hefst um 1:25.

 

 

- Auglýsing -