Keppendur og starfsmenn mótsins í Paracin. Mynd af Facebook.

Skákmeistari Reykjavíkur, Stefán Bergsson (2192), tefldi eina af skákum ársins í áttundu og næstsíðustu umferð alþjóðlega mótsins í Paracin í Serbíu. Stefán kom slakur til leiks en miklu meira var undir hjá andstæðingum hinum rússneska Anton Konaplev (2316) sem dugði einn vinningur í tveim síðustu skákum mótsins til að ná í áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

Stefán mætti vel undirbúinn til leiks, tefldi agað og beið tækifærisins. Andstæðingur tefldi ónákvæmt og Stefán refsaði. Skákin tefldist:

1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rd2 c5 4.exd5 Dxd5 5.Rgf3 cxd4 6.Bc4 Dd6 7.Rb3 Rf6 8.0-0 Rc6 9.Rbxd4 Rxd4 10.Rxd4 a6 11.He1 Dc7 12.De2 Bd6 13.Bg5!

 

Gefum Reykjavíkurmeistaranum orðið:

Hann var frekar tómur eftir 13. Bg5. Hann þurfti að reikna hvað myndi gerast ef hann léki 13…Bxh2+, sem tapar, á meðan ég var með þetta á allt á hreinu þar sem ég hafði skoðað þessar leikjaraðir gaumgæfilega fyrir skákina.  

13…Be7 14.Had1 0-0 

 

15.Rf5! Bd8 (15…exf5? 16. Dxe7 Dxc4?? 17. Dxf8+!)

 

16.Hxd8! Dxd8

 

17.Rxg7!! Kxg7 18.De5 Hg8

 

19.He3! Kf8 20.Hd3 Dxd3 og hvítur vann skömmu síðar. Skákina má finna í heild sinni á Chess24.

Skákin í heild sinni

 

Einkar glæsileg skák hjá Stefáni. Þriðja sigurskákin í röð eftir að hafa hafið mótið með fimm tapskákum. Kennslubókardæmi hjá Reykjavíkurmeistaranum hvernig eigi að takast á við mótlæti.

Lokaumferðin hefst kl. 8 í fyrramálið.

- Auglýsing -