Aserinn brosmildi og viðkunnanlegi, Shahkriyar Mamedyarov (2801), vann öruggan sigur á ofurmótinu í Biel sem lauk í gær. Aserinn hlaut 7½ vinning eða 1½ vinningi meira en sjálfur heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2842). Mamedayarov er í miklu formi þessa dagana og hefur aðeins 19 skákstigum minna en heimsmeistarinn á lifandi skákstigalistanum. Á milli þeirra er Caruana.
Gleðin skein af ekki Carlsen við verðlaunaafhendinguna en hann vann Georgiadis (2526) í lokaumferðinni eftir að heimamaðurinn hafði klúðrað á klaufalegan hátt jafnteflisstöðu í tap. MVL (2779) fékk bronsið.
Lokastaðan
| Röð | Nafn | Vinn | Stig |
| 1. | Mamedyarov, Shakhriyar | 7.5/10 | 2801 |
| 2. | Carlsen, Magnus | 6/10 | 2842 |
| 3. | Vachier-Lagrave, Maxime | 5.5/10 | 2779 |
| 4 | Svidler, Peter | 5.5/10 | 2753 |
| 5 | Navara, David | 4/10 | 2741 |
| 6. | Georgiadis, Nico | 1.5/10 | 2526 |
Nánar á Chess.com.
- Auglýsing -
















